Sæl , Helena heiti ég og er í áfanganum Handmennt 102 í Menntaskólanum í Kópavogi.
Í áfanganum eigum við að prjóna það sem okkur langar. Markmið áfangans er að ná að prjóna lopapeysu á okkur eða fjóra minni hluti t.d. vettlinga, sokka, trefil , húfu og fl.
Í áfanganum eigum við að prjóna það sem okkur langar. Markmið áfangans er að ná að prjóna lopapeysu á okkur eða fjóra minni hluti t.d. vettlinga, sokka, trefil , húfu og fl.
Ég valdi þennan áfanga sem valfag vegna þess ég hef mikinn áhuga á að prjóna og búa til fallegar flíkur. Svo er einnig gaman að vera í verklegum áfanga til að létta á bóklega náminu. Það er alltaf gaman að kunna að prjóna og ég efast ekki um að það muni hjálpa mér í framtíðinni.
Ég ákvað að byrja á að prjóna fallega uppskrift af vettlingum. Uppskriftin inniheldur 5 liti en ég ákvað að hafa 3 liti, hvítan, svartan og gráan. Það er einstaklega fallegt munstur á vettlingunum sem ég heillaðist að.
Mig langaði til þess að prjóna úr garni sem væri ekki lopi því mig klægjar svo undan því. Þá fær munstrið líka að njóta sín enn betur.
Ég fór í hagkaup og keypti mér garn í vettlingana og keypti 5 prjóna í stærð 3.5.
Svo byrja ég á að fitja upp 48 lykkjur og prjóna fjórar umferðir af garðaprjón og set svo 12 lykkjur á 4 prjóna. Síðan byrja ég á munstrinu sem gekk mjög vel og kom vel út.
Síðan held ég áfram að prjóna slétt og bæti svo við plássi fyrir þumlinn.
Vonandi næ ég að klára vettlinginn sem fyrst svo ég nái að byrja á hinum fljótlega.
Kveðja Helena
No comments:
Post a Comment