Núna er önnin að ljúka og ég ákvað að prófa eitthvað nýtt og handprjóna.
Ég fann kennslumyndband á netinu og ég varð að prjóna þetta.
Garnið keypti ég í rúmfatalagernum og heitir Fritids Garn frá Noregi. Í myndbandinu þá notar stelpan tvær dokkur af garni en ég ákvað að hafa hann aðeins þykkari og keypti 3, líka vegna þess að garnið var ekki eins gróft og það sem hún notaði.
Stelpan í myndbandinu sýndi mjög vel hvernig ætti að byrja og þótt ég átti í smá erfiðleikum í byrjun þá komst ég upp á lagið með þetta og síðan sat ég út í sólinni að handprjóna.
Ég notaði þrefalt garn , tvær dokkur af dökk gráum svo eina af ljósgráum til að fá smá blæ. Ég fitjaði upp 12 lykkjur og prjónaði þangað til dokkurnar voru búnar. Síðan gekk ég frá og losaði mér við lykkjurnar eins og hún sýnir í myndbandinu.
Litla systir mín varð yfir sig hrifin af þessari aðferð ásamt mér og mikið er ég ánægð með útkomuna.
Tók mig um klukkutíma að prjóna þetta en ég var aftur á móti ekkert að flýta mér , enda tilvalið að sitja úti á palli og prjóna í sólinni.
Það er bæði hægt að nota þetta sem rosalega töff sjal og einnig sem klút og trefil.
Ég hlakka mikið til að prjóna svona í öllum litum og alveg tilvalið sem afmælisgjöf og jólagjöf.
Ég hugsa að þetta sé uppáhalds fylgihluturinn sem ég hef prjónað ásamt vettlingunum sem ég gerði fyrr á önninni, ég gaf frænku minni þá og hún var gríðalega ánægð með þá.
Takk æðislega fyrir önnina , þetta er búið að vera mjög áhugavert þar sem ég var ekki virk í að prjóna áður fyrr. Núna langar mér að fara prjóna mér lopapeysu fyrir Þjóðhátið þar sem ég tel mig vera orðin flink í prjónunum.
Kær kveðja Helena






