Sunday, May 4, 2014

Hæhæ !

Núna er önnin að ljúka og ég ákvað að prófa eitthvað nýtt og handprjóna.

Ég fann kennslumyndband á netinu og ég varð að prjóna þetta.


Garnið keypti ég í rúmfatalagernum og heitir Fritids Garn frá Noregi. Í myndbandinu þá notar stelpan tvær dokkur af garni en ég ákvað að hafa hann aðeins þykkari og keypti 3, líka vegna þess að garnið var ekki eins gróft og það sem hún notaði. 

Stelpan í myndbandinu sýndi mjög vel hvernig ætti að byrja og þótt ég átti í smá erfiðleikum í byrjun þá komst ég upp á lagið með þetta og síðan sat ég út í sólinni að handprjóna. 

Ég notaði þrefalt garn , tvær dokkur af dökk gráum svo eina af ljósgráum til að fá smá blæ. Ég fitjaði upp 12 lykkjur og prjónaði þangað til dokkurnar voru búnar. Síðan gekk ég frá og losaði mér við lykkjurnar eins og hún sýnir í myndbandinu. 

Litla systir mín varð yfir sig hrifin af þessari aðferð ásamt mér og mikið er ég ánægð með útkomuna. 
Tók mig um klukkutíma að prjóna þetta en ég var aftur á móti ekkert að flýta mér , enda tilvalið að sitja úti á palli og prjóna í sólinni. 

Það er bæði hægt að nota þetta sem rosalega töff sjal og einnig sem klút og trefil. 
Ég hlakka mikið til að prjóna svona í öllum litum og alveg tilvalið sem afmælisgjöf og jólagjöf. 

Ég hugsa að þetta sé uppáhalds fylgihluturinn sem ég hef prjónað ásamt vettlingunum sem ég gerði fyrr á önninni, ég gaf frænku minni þá og hún var gríðalega ánægð með þá. 

Takk æðislega fyrir önnina , þetta er búið að vera mjög áhugavert þar sem ég var ekki virk í að prjóna áður fyrr. Núna langar mér að fara prjóna mér lopapeysu fyrir Þjóðhátið þar sem ég tel mig vera orðin flink í prjónunum. 

Kær kveðja Helena
       



Húfa

Sæl

Hérna er falleg húfa sem ég prjónaði einnig í verkfallinu þegar maður hafði litið annað að gera en að nýta tíman að klára prjóna. 

Ég byrjaði á því að fitja 12 lykkjur upp á hringprjón nr. 6.
Öll húfan var prjónuð með tvöföldu garni.

Byrjað var að prjóna frá toppi og niður
Haldið var áfram með því að auka í,  í annari hverri umferð
1 lykkju þar til lykkjurnar voru 138 lykkjur á prjóninum.

Síðan var takið úr í hverri umferð, þar til lykkjurnar urðu í
kringum 72-78 það er bara mælt út á hvað aðilinn er með stóran haus.

Kveðja þóra 



Ponsjó

Sæl

Hér var að prjóna rosalega flott Axla ponsjó sem ég er búin að vera dunda mér við að prjóna á meðan verkfallið stóð yfir, tók mig samt ágætan tíma en kom mjög vel út í lokinn. 

Ég fitjaði upp 166 lykkjur með garni sem heitir Álafosslopi á hringprjón nr. 6. Tengdi síðan hringin og prjónaði upp að hálsi og svo frá hásli og upp úr.
Frekar flókið Ponsjó en uppskriftin af þessu ponsjói er í blaði sem heitir LOPI 33







Útkoman var mjög flott, var ekkert smá ánægð með þetta.
Í blaðinu er ponsjóið, ljós brunt mjög fallegt en ég ákvað að hafa það dökk blátt, en það ver algjörlega eftir smekksatriðum hvað fólki finnst.

Hér læt ég fylgja myndir þegar ég var búin að prjóna það.



Kveðja Þóra 

Trefill

Hæhæ þóra hér
Hér er ég búin að prjóna fallegan og einfaldann trefil sem byrjendur ættu að geta gert.
Ég fór í Hagkaup og keypti þar 3 dokkur af garni, sem heitir Freyja.
Byrjaði síðan að fitja upp 45 lykkjur á hringpjón.
Prjónaði fram og til baka bara sléttar lykkjur, það var nú ekkert erfiðara en það.
Mjög góð æfing fyrir byrjendur.
Trefillinn er 180 cm á lengd og er mjög mjúkur og góður. Hlakka til að getað notað hann næsta vetur. 




Monday, April 14, 2014

Vettlingar

Halló halló !

Jæja nú er ég loksins búin að prjóna vettlingana sem ég hóf í byrjun annar. Heppnin fylgdi mér alls ekki því ég prjónaði bæði stykkin á sömu hendi.

Ég þrjóskaðist við að rekja þetta upp og laga vettlinginn og sé alls ekki eftir því.

Ég er hrikalega ánægð með þá og mér finnst munstrið vera svo fallegt.

Ég ákvað að gefa mágkonu minni þá því henni fannst þeir vera svo flottir.

Núna þarf ég bara að fara ákveða hvað ég ætti að prjóna næst !
Húfa er ofarlega í huga :) Gleðilega páska

Kveðja Helena 

Hérna eru myndir af þeim



Ennisband

Sæl 

Ég var að prjóna rosalega flott ennisband sem ég er búin að vera nota mjög mikið undanfarna daga og heldur algjörlega hita ! 

Ég fitjaði upp 15 lykkjur með garn sem ég fann heima hjá frænku minni. Garnið var ekki úr ull því ég þoli það svo illa. 
Ég notaði prjóna nr 4.5 minnir mig og prjónaði mjög fast þá varð ennisbandið mjög þétt og gott. 

Ég mældi það bara eftir höfðinu mínu hversu langt það ætti að vera og síðan saumaði ég endana saman líkt og ég gerði við trefilinn. 
Ég var enga stund að þessu , tók mig ekki nema bara um tvo tíma. 

Hér eru myndir þegar ég var nýbúin að prjóna það :)

Kveðja Helena



Trefill

Hæhæ

Núna er ég buin að vera að vera dunda mér og ýmislegt sem mig langar til þess að prjóna.

Ég vildi prjóna trefil sem væri svona stór hringur sem væri bæði hlýr og flottur.
Ég keypti flott hvítt garn í Rúmfatalagernum sem var bæði þunnt og þykkt þannig það kæmi flott áferð.

Ég prjónaði slétt á hringprjón númer 10 og notaði tvær dokkur.

Síðan gekk ég frá og saumaði hann saman í endana. Mér fannst þetta koma vel út og ég mun alveg sjá fyrir mig nota hann í framtíðinni. Hann er líka mjög hlýr og góður.


Kveðja Helena


              

Wednesday, February 12, 2014

Ennisband

Hæhæ þóra hér
Hér er ég búin að prjóna fallegt fléttu Ennisband.
Ég fór í búðina Föndra og keypti þar 3 dokkur af garni, byrjaði síðan að fitja upp 36 lykkjur á hringpjón nr. 4. Prjónaði fram og til baka. Byrjaði allar umferðir á brugðinni lykkju og endaði þær á sléttri lykkju nema umferð sem byrjar á kaðalsnúningi, þar byrjaði ég á sléttri lykkju.
Myndi ekki segja að þetta væri fyrir byrjendur, en þar sem mér fannst þetta ennisband mjög flott ákvað ég að reyna á það.
Gekk hins vegar ekki svo vel fyrst en fékk mikla hjálp hjá kennara og einnig ömmu.
Endaleg útkoma á ennisbandinu kom mjög vel út.


                                                                                      

Friday, January 31, 2014

Vettlingar


Sæl , Helena heiti ég og er í áfanganum Handmennt 102 í Menntaskólanum í Kópavogi.
Í áfanganum eigum við að prjóna það sem okkur langar. Markmið áfangans er að ná að prjóna lopapeysu á okkur eða fjóra minni hluti t.d. vettlinga, sokka, trefil , húfu og fl.

Ég valdi þennan áfanga sem valfag vegna þess ég hef mikinn áhuga á að prjóna og búa til fallegar flíkur. Svo er einnig gaman að vera í verklegum áfanga til að létta á bóklega náminu. Það er alltaf gaman að kunna að prjóna og ég efast ekki um að það muni hjálpa mér í framtíðinni.

Ég ákvað að byrja á að prjóna fallega uppskrift af vettlingum. Uppskriftin inniheldur 5 liti en ég ákvað að hafa 3 liti, hvítan, svartan og gráan. Það er einstaklega fallegt munstur á vettlingunum sem ég heillaðist að. 
Mig langaði til þess að prjóna úr garni sem væri ekki lopi því mig klægjar svo undan því. Þá fær munstrið líka að njóta sín enn betur. 


Ég fór í hagkaup og keypti mér garn í vettlingana og keypti 5 prjóna í stærð 3.5. 
Svo byrja ég á að fitja upp 48 lykkjur og prjóna fjórar umferðir af garðaprjón og set svo 12 lykkjur á 4 prjóna. Síðan byrja ég á munstrinu sem gekk mjög vel og kom vel út.
Síðan held ég áfram að prjóna slétt og bæti svo við plássi fyrir þumlinn. 

Vonandi næ ég að klára vettlinginn sem fyrst svo ég nái að byrja á hinum fljótlega.


Kveðja Helena