Monday, April 14, 2014

Vettlingar

Halló halló !

Jæja nú er ég loksins búin að prjóna vettlingana sem ég hóf í byrjun annar. Heppnin fylgdi mér alls ekki því ég prjónaði bæði stykkin á sömu hendi.

Ég þrjóskaðist við að rekja þetta upp og laga vettlinginn og sé alls ekki eftir því.

Ég er hrikalega ánægð með þá og mér finnst munstrið vera svo fallegt.

Ég ákvað að gefa mágkonu minni þá því henni fannst þeir vera svo flottir.

Núna þarf ég bara að fara ákveða hvað ég ætti að prjóna næst !
Húfa er ofarlega í huga :) Gleðilega páska

Kveðja Helena 

Hérna eru myndir af þeim



Ennisband

Sæl 

Ég var að prjóna rosalega flott ennisband sem ég er búin að vera nota mjög mikið undanfarna daga og heldur algjörlega hita ! 

Ég fitjaði upp 15 lykkjur með garn sem ég fann heima hjá frænku minni. Garnið var ekki úr ull því ég þoli það svo illa. 
Ég notaði prjóna nr 4.5 minnir mig og prjónaði mjög fast þá varð ennisbandið mjög þétt og gott. 

Ég mældi það bara eftir höfðinu mínu hversu langt það ætti að vera og síðan saumaði ég endana saman líkt og ég gerði við trefilinn. 
Ég var enga stund að þessu , tók mig ekki nema bara um tvo tíma. 

Hér eru myndir þegar ég var nýbúin að prjóna það :)

Kveðja Helena



Trefill

Hæhæ

Núna er ég buin að vera að vera dunda mér og ýmislegt sem mig langar til þess að prjóna.

Ég vildi prjóna trefil sem væri svona stór hringur sem væri bæði hlýr og flottur.
Ég keypti flott hvítt garn í Rúmfatalagernum sem var bæði þunnt og þykkt þannig það kæmi flott áferð.

Ég prjónaði slétt á hringprjón númer 10 og notaði tvær dokkur.

Síðan gekk ég frá og saumaði hann saman í endana. Mér fannst þetta koma vel út og ég mun alveg sjá fyrir mig nota hann í framtíðinni. Hann er líka mjög hlýr og góður.


Kveðja Helena